14.4.2007 | 03:20
Auglýsi eftir kæró...
Fór til læknis í eyjum og tíminn var eitthvað á þessa leið...
Læknir: Já, María mín hvað ertu að læra?
María: Lögfræði
Læknir: Yes, so you've gone over to the dark side (lesist með dimmri röddu)
........ fullt af skrítnu spjalli (framhaldsskóli geymsla fyrir krakka o.fl)
Læknir: Ertu gengin út ?
María: Nei, komin aftur á markaðinn
Læknir: Já, það verður erfitt fyrir þig að ganga út
María: Ha ? afhverju ?
Læknir: Æji þetta er bara ekki sætt (horfir á hendi mína)
María: já, þetta er nú samt skárra en stubbar, Björn Ívar læknir náði að bjarga þessu !!!
Læknir: Já en samt ekki sætt... verður bara að leggja þig betur fram...
Okey... gaman að fara til læknis....
En neij neij þetta er ekki búið....
Fór til ömmu á Elló að kveðja hana
Amma: Jæja María mín búin að ná þér í strák ?
María: Neij, amma mín
Amma: Hvað er þetta, kanntu þetta ekki ?
María: tja ég veit ekki... liggur eitthvað á?
Amma: Eru engir strákar hér í eyjum ? Eða í Háskólanum ?
María: jújú...
Amma: En ekki hafa áhyggjur María mín, þetta gerist bara 1-2 og BÚMM !!!
María: Já amma mín... !!!
* Ath. amma mín er 91 árs
Þetta var nóg á einum degi...
Vissi ekki að fólk hefði svona miklar áhyggjur af þessu.... (mamma o.fl líka með áhyggjur)
Þannig að ef þið vitið um einhvern sem vill þykjast vera kæró svo ég geti friðað þetta fólk... þá væri það fínt !!!
Um bloggið
Tilvera okkar er undarlegt ferðalag
Tenglar
Favorites
- Eyjafréttir
- Fótbolti.net
- Vefritid
- Deiglan
- VAKA mín Vaka Félag lýðræðissinnaðra stúdenta
- Pysjurnar Vinkonurnar úr eyjum
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.