Færsluflokkur: Bloggar
14.4.2007 | 22:20
Svo sátt....
Já nú er ég sátt
Bikarúrslitaleikur 2005 var svo sár
En þessi verður án efa snilld !!!
Spurning hvort Blackburn eða Chelsea verða grenjandi þann 19. maí
Þrenna í ár ????
----------
Gæti orðið lítið um blogg á næstunni..... styttist í próf !!!
Man.Utd. í úrslit í 18. sinn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 15.4.2007 kl. 01:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.4.2007 | 03:20
Auglýsi eftir kæró...
Fór til læknis í eyjum og tíminn var eitthvað á þessa leið...
Læknir: Já, María mín hvað ertu að læra?
María: Lögfræði
Læknir: Yes, so you've gone over to the dark side (lesist með dimmri röddu)
........ fullt af skrítnu spjalli (framhaldsskóli geymsla fyrir krakka o.fl)
Læknir: Ertu gengin út ?
María: Nei, komin aftur á markaðinn
Læknir: Já, það verður erfitt fyrir þig að ganga út
María: Ha ? afhverju ?
Læknir: Æji þetta er bara ekki sætt (horfir á hendi mína)
María: já, þetta er nú samt skárra en stubbar, Björn Ívar læknir náði að bjarga þessu !!!
Læknir: Já en samt ekki sætt... verður bara að leggja þig betur fram...
Okey... gaman að fara til læknis....
En neij neij þetta er ekki búið....
Fór til ömmu á Elló að kveðja hana
Amma: Jæja María mín búin að ná þér í strák ?
María: Neij, amma mín
Amma: Hvað er þetta, kanntu þetta ekki ?
María: tja ég veit ekki... liggur eitthvað á?
Amma: Eru engir strákar hér í eyjum ? Eða í Háskólanum ?
María: jújú...
Amma: En ekki hafa áhyggjur María mín, þetta gerist bara 1-2 og BÚMM !!!
María: Já amma mín... !!!
* Ath. amma mín er 91 árs
Þetta var nóg á einum degi...
Vissi ekki að fólk hefði svona miklar áhyggjur af þessu.... (mamma o.fl líka með áhyggjur)
Þannig að ef þið vitið um einhvern sem vill þykjast vera kæró svo ég geti friðað þetta fólk... þá væri það fínt !!!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.4.2007 | 16:27
herjólfsvínbjórdrykkjusjóveikisdallur...
Ég mun seint teljast mikill sjómaður enda aldrei náð að venjast þessu fleygi.
Þrátt fyrir fjöldann allan af ferðum (meira segja 12 tíma samfleytt einu sinni) þá verð ég alltaf að labba beinustu leið niður í koju, kveikja á ipod-num og kúra mig í svefn áður en skipið leggur af stað frá bryggju...
Bjór er mér því ekki ofarlega í huga þegar ég fer í Herjólf
-------------------
Þetta er samt sölutrykk
- ,,Hvað, þú sest bara upp í veitingasal, færð þér einn kaldann og nýtur þess að vera út á sjó"
Ætti að fjölga í EYJAFERÐ VÖKU við þessar fréttir..... bjórinn selur...
Og svo ætti maður kannski að hætta að kvarta og kveina yfir samgöngum okkar eyjamanna... ég meina það er ekki hægt að kaupa áfengi í Hvalfjarðargöngunum
Sótt um áfengisleyfi um borð í Herjólfi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
10.4.2007 | 03:47
Svör óskast
Hvaða skilning á ung stúlka að leggja í það, þegar faðir hennar kallar hana
ÚTIGANGSROLLU ???
* þetta var ekki faðir minn og ég var ekki umrædd stúlka
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
8.4.2007 | 23:18
Vó...
Sko ég vissi það......
Harry Potter er sannsöguleg....
Get ekki beðið eftir næstu dagbókinni hans
Verkfræðingar hanna hulinsskikkju | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.4.2007 | 19:13
Gleðilega páska...
Nokkur orð um daginn í dag
Vakning - brunch - humar - heitir réttir - tartalettur - ratleikur - páskaegg - ofát - leynivinir - amma - hneyksli - hlátur - kjóll - kirkja - söngur - grátur - jesús - pakistani - furðuverk - bíltúr - fjöruferð - fjölskyldan - fív - lögfræði - lærdómur - lambalæri - lambahryggur - ís - leynivinur opinberaður - knús - kossaflens - ........
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.4.2007 | 21:06
Söknuður...
Vá hvað ég sakna fóstbræðra....
Snilld....
Ef þið eruð komin með ógeð af próflestri,endilega skoðið þetta......
Er reyndar með svo mikinn aulahúmor að ég hlæ að nánast öllu...
--------------------
Gærkvöldið var skrautlegt...... enough said
Og svo skulum við öll klappa fyrir Rio Ferdinand og Edwin van der Sar.... Þeir voru svo sannarlega að vinna fyrir laununum sínum í dag... Eins gott að Man.Utd fari ekki að klúðra þessu á síðustu metrunum !!!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.4.2007 | 12:50
Veraldarvefurinn kemur alltaf jafn skemmtilega á óvart....
Ég er að fara á vorfagnað Fyrirmyndabílstjórafélagsins í kvöld.... löggu/bófa þema (glæpamenn).
Hafði hugsað mér að vera Hitler á hans yngri árum, með smá kvennlegu ívafi. Enda á pabbi fullt af herdrasli sem myndi gera þetta rosalega flott.... En Hildur ætlar að vera "deitið" mitt og við vorum að spá í að fara sem eitthvað flott glæpapar. Stúlkan fór því að googl-a.
Leitaði eftir myndum sem tengdust orðunum criminals, villians, Bonnie and Clyde o.fl en svo sló ég inn CRIMINAL TEAMS....
og við mér blasti íslenski fáninn... ha ???
Nei Íslendingar tengjast ekki glæpateymi (óstaðfest) heldur var þetta blogg hjá stúlku sem finnst það glæpsamlegt að ekki sé til ólympíulið Íslands í því að prjóna ég vægast sagt dó úr hlátri....
,,But if I were to be a Knitting Olympian, wich I'm
not, I would would want to knit for team Iceland.
As far as I can tell, no one has started a Team
Iceland. Which is practically criminal, considering
that it is the home of Lopi!
There are many other wonderful things about
Iceland, beside the sheep, if that weren't enough"
Já kaninn er skemmtilegur
En að öðrum miklvægari málum, ef einhver þarna úti veit hvaða glæpapar við Hildur getum verið.... plís let me know....
nokkrar hugmyndir....
* vinsamlegast athugið að það kemur þessari færslu ekkert við að ég á að vera lesa um afturvirkni laga en ekki leika mér á netinu....
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
5.4.2007 | 21:13
ótrúlegt....
Sem mikill knattspyrnuaðdáandi skil ég ekki að fólk skuli ganga svona langt....
Bretar hafa verið stimplaðir sem einhverjar bullur en þeir eru ekki sér á báti.... Svo er spurningin, er þetta verra á milli félagsliða heldur en landsliða ?
Ætla mér að fullyrða að þannig sé málunum t.d háttað í Skotlandi.
Þar fer maður á lansleik, klæðir sig í bláa búningin, fer á pöbbinn fyrir leik, sötrar bjór, skellir sér á leikinn og syngur "Oh flower of Scotland", "We'll be coming" o.fl lög stanslaust í 2 tíma. Allir glaðir og léttir í lund. Og sama hvernig leikurinn fer þá er fólk mætt til þess að styðja sitt lið.
Ef þú hins vegar ferð á leik hjá Celtic og Rangers. ÚFF..... Þar skaltu ekki vera einn á göngu merktur þínu liði, þá skaltu halda þig í stórum hóp, fjarri andstæðingunum. Lögreglan er á verðbergi allan tímann, slagsmál brjótast út fyrir leik, á meðan leik stendur og eftir leik. Hver er ánægjan í því ?
Tek það samt fram að ég geri mér grein fyrir því að trúmál blandast oft inn í deiluna hjá Celtic og Rangers. Og að lögin sem að Skotarnir syngja um Englendingana eru ekki beint vinsamleg.
Svo að lokum viðurkennist það að ég sé landsleiki hjá skoska landsliðinu í hyllingum. Enda fáránlega mikil skemmtun.....
Stuðningsmaður Manchester United alvarlega slasaður | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
2.4.2007 | 14:11
Góður dagur...
Dagurinn í dag hefur verið flottur
Byrjaði á því að ég var vakin upp með afmæliskökur, vel skreyttri tölunni 21 og með fullt af kertum Frekar amerískt en samt rosalega nice, en Sara, Sigurjón, Hekla Sif, Hrafnhildur Svala og Skellibjalla voru svona góða við mig. Fór því á fætur og fékk mér gómsæta köku og ískalt mjólkurglas
Lá svo að kúra í Skellibjöllu og horfa á family guy, sem er alltaf jafn fyndinn. Þá fæ ég afmælispakka og hringingu frá yndislegri móður minni Hún ætlar að elda svakalegan mat fyrir mig á morgun... og mun bíða mín hálfgerð afmælisveisla í Eyjum á morgun. Ekki leiðinlegt að halda upp á afmælið 2 daga í röð !!!
Svo opna ég ugluna og þá spilar hún fyrir mig afmælissöngin. HÍ gerir nefninlega marga hluti vel
Er upp á Lögbergi að lesa um lögskýringar.... JIBBÝ !!!
Er að fara prófa nýju sundlaugina í Mosó með Ívari, Davíð og Hrönn. Fer svo í afmælismat til þeirra....
Fer svo á stjórnafund, og heimta að fá köku.... tek meira segja eina með mér til öryggis....
Fer svo að knúsa vinkonurnar....
Fer svo upp á Lögberg að læra meira....
TAKK ALLIR SEM MUNDU EFTIR MÉR Í DAG !!! SKEMMTILEGT AÐ FÁ SVONA MARGAR KVEÐJUR..... sérstakleg þar sem ég fékk engar frá Íslandi í fyrra.... Bara frá Mhairi og einhverjum Egyptum (Var reyndar ekki í símasambandi)
Ég á svo ótrúlega marga góða að..... mjög ánægð ung eyjamær í dag
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Um bloggið
Tilvera okkar er undarlegt ferðalag
Tenglar
Favorites
- Eyjafréttir
- Fótbolti.net
- Vefritid
- Deiglan
- VAKA mín Vaka Félag lýðræðissinnaðra stúdenta
- Pysjurnar Vinkonurnar úr eyjum